Number 106
Er í lífsins orðum leita
Er í lífsins orðum leita
1. Er í lífsins orðum leita,ljúfi faðir, bið ég þig:Gef mér þekking, greind og visku,góði faðir, leið þú mig.
2. Er í lífsins orðum leita,lát þinn anda vera hér.Ljósi þínu’ og leyndardómumljúk upp, faðir, fyrir mér.
3. Er í lífsins orðum leita,líkn mér færi huggun þín.Miskunn þín og máttur, faðir,megni’ að græða sárin mín.
4. Er í lífsins orðum leita,leiði hlýðni’ og bæn til þín.Orð þitt geymir eilíft lífið,ætíð sé það leiðsögn mín.
Lag og texti: C. Marianne Johnson Fisher, 1932–2018 © 1985 IRI
Íslensk þýðing: Sveinbjörg Guðmundsdóttir, 1929