Book cover

Áfram Herrans herir

Sálmar, 102


0:00 0:00
Introduction
All Verses

1. Áfram Herrans herir, höldum enn í stríð, sigurmerkið sæla, svífur fyrir lýð, hæstur Herrann Kristur her gegn syndum býr, blaktir fyrir fylking fáni hár og dýr.

Áfram Herrans herir, hefjum sókn á ný, fögrum sigurfána fylgjum stríðið í.

2. Sjáist sigurmerkið Satans hópur flýr, sækið Herrans sveitir, sigurinn er dýr. Bifast hallir heljar, hrynja’ í sigurgný, látum sönginn svella, sigurljóðin ný.

Áfram Herrans herir, hefjum sókn á ný, fögrum sigurfána fylgjum stríðið í.

3. Kveður Drottins kirkja, kallar alla þjóð, feta Herrans herir helgra manna slóð. Einn er okkar vilji, eitt vort líf og sál, öll sem eitt vér trúum, eitt vort hjartans mál.

Áfram Herrans herir, hefjum sókn á ný, fögrum sigurfána fylgjum stríðið í.

4. Áfram allir lýðir, allra landa þjóð, takið allir undir, okkar gleðiljóð. Virðing, dýrð og vegsemd veiti Drottni þjóð, honum allar aldir ómi dýrðarljóð.

Áfram Herrans herir, hefjum sókn á ný, fögrum sigurfána fylgjum stríðið í.