1. Heims um ból, helg eru jól; signuð mær son Guðs ól. Frelsun mannanna, frelsisins lind, frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind meinvill í myrkrunum lá. Meinvill í myrkrunum lá.
2. Heimi í, hátíð er ný himneskt ljós lýsir ský. Liggur í jötunni lávarður heims, lifandi brunnur hins andlega seims, konungur lífs vors og ljóss. Konungur lífs vors og ljóss.
3. Heyra má himnum í frá englasöng: „Allelúja.“ Friður á jörðu því faðirinn er fús þeim að líkna sem tilreiðir sér samastað syninum hjá. Samastað syninum hjá.