1. Heims um ból, helg eru jól;
signuð mær son Guðs ól.
Frelsun mannanna, frelsisins lind,
frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind
meinvill í myrkrunum lá.
Meinvill í myrkrunum lá.
2. Heimi í, hátíð er ný
himneskt ljós lýsir ský.
Liggur í jötunni lávarður heims,
lifandi brunnur hins andlega seims,
konungur lífs vors og ljóss.
Konungur lífs vors og ljóss.
3. Heyra má himnum í frá
englasöng: „Allelúja.“
Friður á jörðu því faðirinn er
fús þeim að líkna sem tilreiðir sér
samastað syninum hjá.
Samastað syninum hjá.
Texti: Sveinbjörn Egilsson 1791–1852
Lag: Franz Gruber, 1787–1863