1. Mormónsbókin minnist ásvo margt frá fyrri tíð,lífshlaup Lamaníta,þeirra leið um höfin víð.Feður þeirra´ og mæður fluttustvestur yfir haf,fundu land, landið sem líf þeim gaf.
2. Einnig hittu þeir aðra,sem þar áttu´ í frelsis leit.Þeim þeir lögðu lið, og land sittgerðu´ að gróðurreit.Mormónsbókin ber,að séu bræður allir menn.Guð þeim gaf lögmál, sem gildir enn.
3. Alma var uppreisnargjarn, gegn réttu barðist hann.Dag einn birtist engill og birti honum sannleikann.Frammi fyrir bræðrum, Alma auðmýkt lærði þar.Upp frá því réttlátan boðskap bar.
4. Gleym ei Abínadi, sem kom fyrir konunginnalfjötraður, en samt boðaði hann boðskapinn.Ef hann aðeins afneitaði, frelsi myndi´ ann fá.Trúr var hann, dyggur, samt deyddur þá.
5. Ammon var sem kristniboði Lamanítum hjá.Sauða konungs Lamonís um tíma gætti þá.Þjófar komu. Féð hann varði vaskur, óhræddur,hafði lært: „Lifa má réttlátur.“
6. Eitt sinn tveim þúsundum bræðra stefnt var út í stríð.Hergöngu til orrustunnar þreytti fylking fríð.Trúðu´ að Kristur myndi verja´ og vernda sína stétt.Ljóst þeim var lífsins boð: „Lifa rétt.“
7. Lamanítinn, Samúel, af hallarmúrnum háttheróp gaf um viðvörun, til iðrunar í sátt.Engar örvar hæfðu hann, því herrann var hans hlífog hann bauð landi´ og lýð: „Réttlátt líf.“
8. (Hægt og með lotningu)Eftir krosfestingu Krists, er dó fyrir þig og mig,sté hann fram og kenndi frelsisboðskapinn um sig.Hönd hans var á sérhvert barn með blíðri blessun sett,Landið þau byggðu og „breyttu rétt.“
Lag og texti: Elizabeth Fetzer Bates, f. 1909. © 1969 IRI
Íslensk þýðing: Ingólfur Jónsson frá Prestbakka
Valvers: Nancy K. Daines Carter, f. 1935. © 1986, 1989 IRI
Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson