Auto-scroll is most reliable with MIDI (computer-generated) audio.
Practice
Loading…
Sjá, dagur rís
1. Sjá, dagur rís, öll dimma flýr.Dýr varir Síons staðall hreinn.Sá dagur betri´er dagur nýr,sá dagur betri´er dagur nýr,í dýrðar veldi ríkir einn.
2. Nú villu skýin víkja bráttúr vegi ljóss og sannleikans.Sú dýrð, er berst af himnum hátt,sú dýrð, er berst af himnum háttá heiminn bregður dýrðar glans.
3. Sjá, endurlausnar undra mynd.Ísraels blessað tryggða band.Og lýður Júda, laus frá synd,og lýður Júda, laus frá syndfær loks sitt fyrirheitna land.
4. Jehóva talar! Heyrið hann.Heiðingjar, komið, öðlist líf.Sú máttar hönd er sigur vann,sú máttar hönd er sigur vannsáttmálans fólki verður hlíf.
5. Englar, orð Guðs og uppheims skartöll mál hér vitna sönnum hreim,svo Síons ljósið leiftur bjart,svo Síons ljósið leiftur bjartnú leiðir Drottins börnin heim.