Auto-scroll is most reliable with MIDI (computer-generated) audio.
Practice
Loading…
Nú fagna vér skulum
1. Nú fagna vér skulum á frelsunar degi,að framandi´ ei lengur vér reikum á jörð.Þau tíðindi berast á láði og legi,að lausnarans koma brátt verið hér gjörð.Er allt sem var heitið þeim heilögu veitist,og hér enginn sækir með áreitni´ að þeim.Og jörðin í Edensgarð blómlegan breytist,og býður þá Jesús: „Ó, komið nú heim.“
2. Með staðföstum huga vér elskum hvert annað,hið illa vér forðumst og sameinumst nú.Er fyllist hinn guðlausi´ af friðleysi´ og kvíða,vér frelsarans bíðum í öruggri trú.Er allt sem var heitið þeim heilögu veitist,og hér enginn sækir með áreitni´ að þeim.Og jörðin í Edensgarð blómlegan breytist,og býður þá Jesús: „Ó, komið nú heim.“
3. Vér trúum á Jahve, hans leiðsögn og liðið,að leiða´ oss í síðustu daganna þraut.Og þegar vér eignumst hér uppskeru sviðið,oss opnast með réttlátum frelsarans braut.Þá allt sem var heitið þeim heilögu veitist,með himneskum englum fá sigursins krans.Og jörðin í Edensgarð blómlegan breytist,þar bústað fær Kristur og söfnuður hans.