Auto-scroll is most reliable with MIDI (computer-generated) audio.
Practice
Loading…
Það engill uppheims var
1. Það engill uppheims var,sem alda rauf hér þögn,frá himni boðin bar,þá björtu, ljúfu sögn.Sjá hæð Kúmóra, hún er hér,þar heilagt rit eitt falið er.Sjá, hæð Kúmóra, hún er hér,þar heilagt rit eitt falið er.
2. Mórónís innsigli´ erþað auðkennt jörðu í,uns Guð sín boðin ber,að birtast skuli´ á ný.Til ljóss þess aftur leið er gjörð,að leiða´ inn ríki Krists á jörð.Til ljóss þess aftur leið er gjörð,að leiða´ inn ríki Krists á jörð.
3. Um Jósefs ætt það erog eyddra þjóða brot,sem eitt sinn áttu hérsín örlaganna þrot.Og guðspjalls auðlegð einnig þarmeð opinberun veitir svar.Og guðspjalls auðlegð einnig þarmeð opinberun veitir svar.
4. Nú fylling fengin erhins fyrirheitna dags,lát jörðu hlýða hérog hverfa myrkur strax;flyt ritið burt svo berist þaðmeð birtu´ og dýrð á sérhvern stað.Flyt ritið burt svo berist þaðmeð birtu´ og dýrð á sérhvern stað.
5. Hve glöð mun Ísraelnú aftur safnast heim,við ráð sem reynast velskal reist Jerúsalem,þá Síon rís með geislaglansí guðdómsljósi sannleikans.Þá Síon rís með geislaglansí guðdómsljósi sannleikans.
Texti: Parley P. Pratt, 1807–1857
Lag: Jon E. Tullidge, 1806–1873
Íslensk þýðing: Jón Jóhannesson, Fór til Utah Í BandarÍkjunum 1896, trúboði SDH á Íslandi 1900–1912