Number 46
Bænin er andans einlægt mál
Bænin er andans einlægt mál
1. Bænin er andans einlægt mál,opinber eða hljóð,hreyfing sem innra bærir bálog brýst um í hjartans glóð.
2. Bænin er andvarp innra manns,örhljótt sem falli tár,upplyftar sálarsjónir hanser sér aleinn Drottinn hár.
3. Bæn er á vörum barna smábyrjunar fegurst hjal,ómróf sem helgast heyra máí himnanna dýrðarsal.
4. Bæn er hins kristna móðurmál,meðfæddur andblær hans,hið dýra orð við dauðans álog dyr til himna ranns.
5. Bænin er hróp hins breyska mannsbrott er frá illu sté.Og englar fagna iðrun hans:„Sjá, auðmjúkt hann beygir kné.“
6. Guðsbörnin eru’ í bæn sem eitt,bæði’ í orði’ og dyggð,við Guðdóminn samband hafa heittí helgun sannri’ og tryggð.
7. Bænin er ekki andvarp héraðeins um mannheims ból,því Kristur og andinn oss fram berástríkt við Guðs náðarstól.
8. Ó, þú, sem opnar lýðum leiðí lífi, sannleik, trúog kraupst til bænar kraminn neyðkenn oss að biðja nú.
Texti: James Montgomery, 1771–1854
Lag: George Careless, 1839–1932
Íslensk þýðing: Jón Hjörleifur Jónsson, 1923