Auto-scroll is most reliable with MIDI (computer-generated) audio.
Practice
Loading…
Sjá deyja lífs vors lausnarann
1. Sjá deyja lífs vors lausnarann,er lögmál rofið bætir hann.Hann fyrir syndir fórn þá ber;hann fyrir syndir fórn þá ber,svo frelsun mannsins verði hér.
2. Þar sekir hefja’ upp háð og spé,og hann þeir negla’ á krossins tré,og þyrnum krýna höfuð hans;og þyrnum krýna höfuð hans,með hlátur móðgun spottarans.
3. Þótt hann á krossi kveldist þar,ei kvörtun neina fram hann bar.Hans göfugt hlutverk fylling fékk;hans göfugt hlutverk fylling fékk,hann föður síns að boðskap gekk.
4. Tak faðir burtu bikar minn.Ég bið en ráði vilji þinn.Það verk er fékk ég fullnað er;það verk er fékk ég fullnað er.Minn anda faðir fel ég þér.