Number 62
Vér heiðrum Jesú heilagt nafn
Vér heiðrum Jesú heilagt nafn
1. Vér heiðrum Jesú heilagt nafn,til hans vor söngur er;á Golgata hann lét sitt líf,svo lifað gætum vér.
2. Með för er burt hann fór úr gröf,varð frelsun heimsins skýrð;hans boðskap fékk hver syndug sál,um sælu’ í himins dýrð.
3. Í sakramenti sýndur er,oss sigur lausnarans;þér helgir vottar verið með,að vernda minning hans.
4. Ó, sonur Guðs vér þökkum það,sem þú oss veittir hér;að sýndir oss þá lífsins leið,sem lögð til himins er.
Texti: Richard Alldridge, 1815–1896
Lag: Joseph Coslett, 1850–1910
Íslensk þýðing: MarÍus Ólafsson, 1891–1983