Auto-scroll is most reliable with MIDI (computer-generated) audio.
Practice
Loading…
Ó, borgin litla, Betlehem
1. Ó, borgin litla, Betlehem,þú bíður í djúpri ró,í heimi drauma dagsins glaumidreifir á þagnarskóg.Þó lýsir ljósið bjarta,það ljós er aldrei dvín,sú von og trú er væntir þúhún verður loksins þín.
2. Í heim er fæddur frelsarinnen fögur englahjörðhjá sveini vakir, vernd einstakaveitir Kristi’ á jörð.Ó, flytjið fregn um heiminnþér fögru himinljósum dýrð á jörð með Drottins hjörðog Drottni sigurhrós.
3. Ó, litla barn frá Betlehem,ég bið þig, kom til mín,svo megi’ ég finna fögnuð þinn,þinn friður aldrei dvín.Nú englar allir syngjasvo ómar geimurinn.Í kærleik þínum kom til mín,Ó, Kristur, Drottinn minn.