Number 85
Guðs kristni í heimi
Guðs kristni í heimi
1. Guðs kristni í heimi, krjúp við jötu lága.Sjá, konungur englanna fæddur er.Himnar og heimar láti lofgjörð hljóma.
Ó, dýrð í hæstu hæðum.Ó, dýrð í hæstu hæðum.Guðs heilagi sonur, ó dýrð sé þér.
2. Sjá, himnarnir opnast. Hverfur nætursorti,og himneskan ljóma af stjörnu ber.Heilagan lofsöng himinhvolfin óma.
Ó, dýrð í hæstu hæðum.Ó, dýrð í hæstu hæðum.Guðs heilagi sonur, ó dýrð sé þér.
3. Já, dýrð sé í hæðum Drottni, Guði vorum,og dýrð sé hans syni, er fæddur er.Lofsöngvar hljómi. Himinhvolfin ómi:
Ó, dýrð í hæstu hæðum.Ó, dýrð í hæstu hæðum.Guðs heilagi sonur, ó dýrð sé þér.
Texti: Eignað John F. Wade um 1711–1786
Ensk þýðing: Frederick Oakley, 1802–1880
Lag eignað: John F. Wade
Íslensk þýðing: Valdimar V. Snævarr 1883–1960