Auto-scroll is most reliable with MIDI (computer-generated) audio.
Practice
Loading…
Gjörnýt þær gullnu stundir
1. Gjörnýt þær gullnu stundir,þær geysast hjá svo ótt.Vinn meðan sólin sindrar,senn mun koma nótt.Oss lánast ei að ljósiðhér lengi sína töfné skuggar frá oss fariút fyrir hinstu nöf.
2. Sem leiftur tíminn líðurá ljósvængs hraða meið.Hann kemur. Fram svo fer hann,fer sína’ eigin leið.Sé vitund eigi vökulfer valkosturinn hreinn,því lífið flughratt flýgursem færi dagur einn.
3. Sem fögru sumri fylgiroft fimbulvetrartíð,svo gæti frá oss gengiðgleði vor um síð.Hve ættum vér þá eigií allri sigra þraut,af æðstu hugsjón iðjaog illu víkja braut?
4. Gjörnýt þær gullnu stundir,það gefur örugg ráð.Sé staðið vel að verki,veitist blessuð náð.Lát göfgi störfum stjórnahaf stálfast hjartaþel,þig æðstur Guð mun elska,annast og hjálpa vel.