1. Dýrmæt er hirðinum hjörðin,\nhyggjan af kærleika full,\ndýrmæt sú ást er hann veitir,\næðri en silfur og gull.\nSvo eru sauðir hans „aðrir,“\nsem burtu villtust af leið.\nÚt yfir fjallklungrin fer hann,\nfallvötnin sollin og breið.\n\n[Chorus]\nAllsvana einir þeir reika\nauðnanna nístandi geim.\nBregður hann skjótt til að bjarga,\nbjarga og flytja þá heim.\n\n2. Dýrmæt og ljúf eru litlu\nlömbin í byrginu hans.\nHaglendið grösuga, græna,\nglataðist mörgum til sanns.\nSjá, hve hann leitar og leitar\nlamba sem glötun er vís,\nfagnandi’ í byrgið þau færir,\nfrelsuð við guðlegan prís.\n\n[Chorus]\nAllsvana einir þeir reika\nauðnanna nístandi geim.\nBregður hann skjótt til að bjarga,\nbjarga og flytja þá heim.\n\n3. Dýrmætir níu’ tíu’ og níu,\nnærðir í byrginu sjást.\nDýrmætir eru þeir aðrir,\nauðnir, sem villast og þjást.\nHeyrið! Hann knýjandi kallar,\nhvetjandi, laðandi brag:\n„Viljð þið fara og finna\nfrávilltu sauðina’ í dag?“\n\n[Chorus]\nAllsvana einir þeir reika\nauðnanna nístandi geim.\nBregður hann skjótt til að bjarga,\nbjarga og flytja þá heim.\n\n4. Ljúfgrænar lendurnar bíða,\nlindirnar svalandi milt.\nHerra! Vér komum við kallið,\nkallið þitt eins og þú vilt.\nAðstoðarhirðana, Herra,\nhelga á kærleikans meið.\nSendu’ oss að leita og leita\nlambanna’ er villast í neyð.\n\n[Chorus]\nAllsvana einir þeir reika\nauðnanna nístandi geim.\nBregður við skjótt til að bjarga,\nbjarga og flytja þá heim.\n