Cover art

Sálmar (1993, 2021-digital), no. 120
Miskunnsemda blikið bjarta

0:00 0:00
Audio

Miskunnsemda blikið bjarta

1. Miskunnsemda blikið bjarta berst frá vita Guðs til mín, oss hann gefur leiðarljósið, ljósið sem á ströndu skín.

Sendu ljósin loga björtu, láttu vitann skína’ um sæ, leystu alla lífs úr háska, lýstu mér uns höfn ég næ.

2. Syndanóttin svört er komin, svarrar brimið þungt og mótt, augu skima þreytt og þjökuð, þrá að nema ljósið rótt.

Sendu ljósin loga björtu, láttu vitann skína’ um sæ, leystu alla lífs úr háska, lýstu mér uns höfn ég næ.

3. Vertu bróðir, ljós er logar, lýstu hverjum þeim er flýr syndanótt og sjóa þunga, sæll til hafnar aftur snýr.

Sendu ljósin loga björtu, láttu vitann skína’ um sæ, leystu alla lífs úr háska, lýstu mér uns höfn ég næ.

Lag og texti: Philip Paul Bliss, 1838–1876

Íslensk þýðing: Friðrik Guðni Friðriksson, 1944