Auto-scroll is most reliable with MIDI (computer-generated) audio.
Practice
Loading…
Börn vors Drottins
1. Börn vors Drottins, ljúft vort laglátum hljóma glatt í dag;sigri Drottins syngjum ljóð,syngjum fögnuð landi’ og þjóð;brátt hann ræður ríki’ á jörð,réttlát verður skipan gjörð,engir menn í syndum sjást,saman lifa’ í friði’ og ást.
2. Ó, hve fagna fáum þá,frelsarinn oss verður hjá.Við hans komu’ og veru hér,vonskan öll í burtu fer.Þá hans dýrð hve dýrkum vér,Drottinn vor og kóngur er.Ó, hve ástin öll fær ráð,ótta’ og kvíða’ ei lengur háð.
3. Hvít í búning hreinleikans,hér í ljósi sannleikans,hátt þá látum hljóma óð,hamingjunnar dýrðarljóð.Hvergi neina synd að sjá,sérhvert líf þá jörðu á,fegurð, ást og fögnuð sinn,finnur streyma’ í hjartað inn.
Texti: James H. Wallis, 1861–1940
Lag: Spænskt lag Í útsetn. Benjamins Carr, 1768–1831